Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Ættarmótinu lokið

Nú er ættarmótinu lokið og viljum við í nefndinni þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að aðstoða okkur og gerðu ættarmótið að þeirri lukku sem það á endanum varð.
Það rættist heldur betur úr mætingu hjá okkur og er ættin orðin ansi stór. Ef allir mæta á næsta ættarmót þá er alveg ljóst að við verðum að finna stærra húsnæði :)
Niðjatalinu var dreift á laugardagskvöldinu til fjölskyldanna og eruð þið beðin um að uppfæra það þannig að það sé fljótlega hægt að klára það. Það má síðan skila því til Ingu á hásteinsveginn.
Við þökkum Ingu og Óskari kærlega fyrir að bjóða okkur að vera í krónni þeirra á föstudagskvöldinu og einnig fyrir drykkina sem voru í þeirra boði.
Gangan á laugardeginum var mjög fín en veðrið hefði mátt vera betra. Húsnæðið var heldur of lítið fyrir okkur, þar sem skráning jókst síðustu dagana. Við gerðum bara það besta úr þessu, börnum var leyft að borða fyrst og svo fullorðnum. Fólk var almennt ánægt með þetta fyrirkomulag,börnin skemmtu sér vel og fullorðna fólkið náði að spjalla saman. Það var þröngt setið en fólk talaði um að það hefði bara ýtt undir frekari kynni.
Enn og aftur þá þökkum við öllum fyrir komuna og óskum ykkur velfarnaðar fram að næsta ættarmóti en það á víst að reyna að halda það 2012 í Fredrikshavn :) Nýja nefndin veit víst allt um það :)
Bestu kveðjur.


Skemmtiatriði óskast !

Nefndin óskar eftir skemmtiatriðum frá ættingjum.
Því fleiri atriði því betra, það er undir okkur sjálfum komið að skemmta hvert öðru.
Þetta mega vera söngatriði, leikir, töfrabrögð eða annað. Öllum atriðum er vel tekið.
Endilega hafið samband ef ykkur dettur eitthvað í hug, vitið um skemmtilegan leik sem hægt væri að fara í eða eitthvað slíkt.
Þið getið sent línu á saedis@hi.is


Dagskrá ættarmótsins

Sæl öll,

Hér getið þið séð dagskrá ættarmótsins.

Einhverjir hafa nú þegar greitt á ættarmótið en það er þó nokkrir sem eiga það eftir. Ég bið ykkur því að drífa í að greiða gjaldið svo við getum farið að sjá nákvæma tölu á þeim sem koma, og þá sérstaklega varðandi fjölda gesta í mat.

Allar greiðsluupplýsingar er að finna í færslunni hér fyrir neðan.

Niðjatalið verður uppfært á ættarmótinu. Útprentanir af niðjatalinu frá ættarmótinu 2001 munu liggja fyrir á ættarmótinu, svo fólk getur bætt og breytt. Þessar útprentanir verða síðan teknar saman í lok ættarmótsins og slegnar inn í tölvu og sendar þeim sem þess óska með tölvupósti. Þá hvetjum við alla til þess að skrifa sig í símaskrá og netfangaskrá Andersen ættarinnar. Búin slíkum lista verður umtalsvert auðveldara að skipuleggja næsta ættarmót af næstu ættarmótsnefnd.

Hægt er að niðurhala niðjatalinu hér og í lok þessarar færslu. 

*Föstudagurinn 31. ágúst*
Við ætlum að hittast í krónni í Básum hjá Ingu og Óskari upp úr 20.00. Það er engin formleg dagskrá heldur er ætlunin að fólk hittist og spjalli og endurnýji gömul kynni. Fólk kemur bara í lopapeysunni og þeir sem vilja taka með gítar er það velkomið. Boðið verður upp á súpu og brauð og kaffi og er fólki velkomið að taka aðrar drykkjarvörur með sér. Sumir eru að koma með Herjólfi seinna sama kvöld og þá er ekki langt að fara þar sem króin er á Básbryggju.

*Laugardagurinn 1. sept.*
Kl. 11.00 / / Hittumst á Skansinum en þar stendur norska stafkirkjan og einnig Landlyst sem var endurbyggt. Danski Pétur og Jóhanna bjuggu í Landlyst í nokkur ár og þar fæddust bræðurnir Knud, Njáll og Malli. Við ætlum að ganga þaðan upp í “Sólbakkaskóg” og bæta nokkrum plöntum við.

Frá “Sólbakkaskógi” er ætlunin að ganga niður að uppgreftri hraunsins sem nú stendur yfir eða “pompei norðursins” og ætlum við að skoða það aðeins. Að því loknu verður gengið niður í kirkjugarð að leiði Péturs, Jóhönnu og Möggu á Sólbakka, og vitjum síðan leiða systkinanna frá Sólbakka. Ef tími verður til og veður leyfir ætlum við að fara á stakkó í létta leiki með börnin.

Eftir smá hvíld hvert á öðru, bað og skveringu verður hátíðarsamkoma í Oddfellow þar sem Grímur kokkur mun sjá um hlaðborð. ATH. Fólk tekur með sína drykki. Ætlunin er að hafa myndatöku af fjölskyldunum sama kvöld.

*Sunnudagur 2. september.*
Ættarmótinu er hér formlega lokið en við hvetjum fólk endilega til þess að kynna sér það sem eyjarnar hafa upp á að bjóða. Fiska- og náttúrusafnið (opið 11.00-17.00) Byggðasafnið (opið 13.00-15.00) Margt annað er hægt að gera t.d. fara í siglingu kringum Eyjar, fara í sund, gönguferð út í Brimurð og Klaufina, renna upp á Stórhöfða, ganga á Eldfell, kíkja í Herjólfsdal, heimsækja frændfólkið ofl.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Greiðsluupplýsingar

Hér kemur smá leiðrétting á fyrri færslu.
Þeir sem eru fæddir 1990 og fyrr greiða fullt gjald eða 5000 kr. (Fullorðnir)
Þeir sem eru fæddir 1991-1995 greiða 1/2 gjald eða 2500 kr. ( Unglingar)
Þeir sem eru fæddir 1996 og seinna fá frítt.

Vinsamlegast hafið þetta í huga þegar þið greiðið fyrir fjölskyldur ykkar á mótið.

Reikningnúmerið er 303-26-54444
kt: 060473-4989

Þegar þið greiðið þá verðið þið að láta fylgja með kennitölu á greiðanda í skýringu.
Sendið síðan tölvupóst á hugoandersen@hotmail.com og saedis@hi.is.

Síðasti greiðsludagur er 15. ágúst.


Ættarmótið nálgast

Það styttist óðum í ættarmótið. Nefndin hefur verið iðin við kolann og þessa dagana má ættfólk okkar eiga von á símtali frá einhverjum af sínum nánustu, sem eru að kanna hvort viðkomandi ætli ekki að skella sér á mótið. Þetta er að sjálfsögðu gert svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir fyrir mótið hvað varðar mat, drykk og húsakost.

Búið er að ákveða hvað mótið skuli kosta:

Fullorðnir (16 ára og eldri) > 4.900.-
Börn frá 12 til 16 ára > 2.450.-
Börn yngri en 12 ára > ókeypis

Vonandi eiga sem flestir kost á að mæta.


Dreifið fagnaðarerindinu...

Kæru frænkur og frændur
Nú viljum við biðja ykkur um smá aðstoð.
Ef þið eruð með netföng hjá frænkum og frændum sem eiga að vera á þessu ættarmóti þá megið þið endilega senda póst á þá aðila, sem myndi innihalda slóðina að heimasíðunni okkar þannig að sem flestir fái fréttir af síðunni og geti nálgast upplýsingar um mótið.
Þeir sem fá póstinn þekkja síðan eflaust einhverja aðra sem þeir geta síðan áframsent póstinn á. Með þessu móti aukum við líkurnar á því að sem flestir komist og það verði frábær mæting á ættarmótið.
Bestu kveðjur,
Nefndin.

Ættarmótið helgina 31. ágúst - 2. sept.

Jæja gott fólk.
Þá er búið að taka ákvörðun um tímasetningu á ættarmótinu en það verður haldið helgina 31. ágúst - 2. sept. 2007.
Vonandi fara nú flestir að huga að því að panta með Herjólfi eða flugi og athuga með gistipláss.
Endilega takið frá þessa helgi.
Við í nefndinni ætlum að hittast fljótlega og reyna að finna út kostnað, en honum verður haldið í lágmarki til þess að flestir sjái sér fært að mæta - aðalatriðið er að hitta fólkið sitt og styrkja tengslin.
Fylgist reglulega með á heimasíðunni - við munum fljótlega setja meira hingað inn.

Nefndina skipa:
Sædís Sigurbjörnsdóttir
Halldóra Ólafsdóttir
Ómar R. Valdimarsson
Húnbogi Jóhannsson
Pétur Magni Jóhannesson.


Vísir að ættartölu Andersen-systkinanna frá Sólbakka

Ættartala
Með því að smella tvisvar á skjalið hér fyrir ofan má sjá það í stærri upplausn. 

Kjörsonur Íslands

Hafsteinn Stefánsson orti þessar vísur við lát Danska-Péturs 1955 og birti í fréttablaði þess tíma í Eyjum.

Við þekktum einn karl sem kjörsonur Íslands var
kominn af danskri grund yfir mislynd höfin.
Hinn svefnlétti piltur af samtímamönnum bar
sjómennskan var honum dýrasta vöggugjöfin.

Í Vestmannaeyjum hann lifði og byggði sér bæ
bústýran gaf honum dætur og myndarsyni
heimilisbjörgin var sótt af kappi í sæ
Sólbakkafjölskyldan eignaðist trausta vini.

Með hreinlegum háttum setti á umhverfið svip
syni hvatti til dáða og þörfustu verka
og feðgarnir áttu saman hin fríðustu skip
flotans prýði með örugga drengi og sterka.

Lífsveginn fetaði hik- og hávaðalaust
hreinskiptinn maður, ljúfur í fasi og svörum,
barðist til sigurs og setti ei nökkva í naust
þó næðingur elli og sjúkleika breytti kjörum.

Úr minningabókinni margt er glatað og týnt
merkileg kynni voru þar færð til leturs
komi ég þar sem allt er fágað og fínt
þá finn ég til nærveru gamla danska Péturs.

Ættarmót Andersen ættarinnar

Ættarmót Andersen ættarinnar verður haldið í Vestmannaeyjum fyrstu eða aðra helgina í september í haust. Á þessari heimasíðu munu birtast upplýsingar um ættarmótið, dagskránna og aðrar handhægar upplýsingar sem nýtast gestum mótsins.

Þeir sem eiga myndir frá ættarmótinu 2001 eru hvattir til þess að senda þær inn á andersen@graenn.is og þeim verður dælt inn í myndaalbúm hér á síðunni.  


Höfundur

Andersen
Andersen
Hérna munu birtast upplýsingar um ættarmót Andersen ættarinnar, sem stendur til að halda í Vestmannaeyjum snemma hausts. Allar myndir af ættmennum eru ákaflega vel þegnar. Vinsamlegast sendið þær í pósti á andersen@graenn.is.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband